К сожалению, в этих Ваших интернетах ничего окромя её фото нет. Ну и небольшая заметка в Вики на, вроде, исландском :)
Svandís Svavarsdóttir (fædd 24. ágúst 1964) er umhverfisráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún hefur verið alþingismaður fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð í Reykjavík frá árinu 2009. Hún sat í Borgarstjórn Reykjavíkur 2006-2009, þar til hún var kjörin á Alþingi.
Svandís er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og lauk BA-prófi við Háskóla Íslands í almennum málvísindum og íslensku árið 1989. Hún gegndi ýmsum störfum fyrir Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á árabilinu 1992-2005, með hléum. Svandís er gift og á fjögur börn. Hún er dóttir Svavars Gestssonar, f.v. ráðherra og sendiherra.
Svandís hóf stjórnmálaferil sinn í Vinstri grænum skömmu eftir stofnun flokksins. Hún var formaður Reykjavíkurfélags VG frá 2003-2005 og framkvæmdastjóri flokksins 2005-2006. Hún leiddi lista VG í borgarstjórnarkosningunum 2006, þegar flokkurinn bauð í fyrsta sinn fram undir eigin merkjum.
Svandís varð staðgengill borgarstjóra þann 16. október 2007, eftir að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sprakk. Björn Ingi Hrafnsson sagði skilið við borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins 11. október 2007, en dagana á undan hafði verið misklíð innan meirihlutans um tilveru útrásararms Orkuveitu Reykjavíkur, þ.e. Reykjavik Energy Invest. Meirihlutinn samanstóð af borgarfulltrúum Samfylkingarinnar, Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs, Framsóknarflokks og F-lista. Samstarfinu lauk skyndilega í ársbyrjun 2008.
Í febrúar 2009 tilkynnti Svandís um framboð sitt í forvali Vinstri grænna fyrir Alþingiskosningarnar 2009. Hún hlaut annað sætið, leiðtogasæti í Reykjavíkurkjördæmi suður og var kjörin á Alþingi þann 25. apríl 2009.
